20janúar

Ný byrjun!

Þar sem það er kominn 20.jan ákvað ég að það væri kominn tími á blogg á því herrans ári 2008!

Síðast þegar ég skrifaði hér voru miklar vangaveltur í gangi um það hvort ég ætti að kíkja norður, niðurstaðan varð sú að ég brunaði norður all by my lonesome á laugardeginum. Hún Kata var svo elskuleg að bjóðast til að hýsa mig í skiptum fyrir far í bæinn ;)  Þegar ég renndi inn á Akureyri fór ég beint til Ollu og sjænaði mig fyrir kvöldið, en það var hittingur hjá gömlum Litlulaugaskólanemendum það kvöld. Stefnan var að sjálfsögðu tekin á Greifann, sem klikkaði ekki frekar en fyrri daginn :) Svo kíktum við öll í partý hjá Steina og enduðum á Kaffi Ak, en þar var einstaklega vel heppnaður hópur fólks að skemmta sér :)

Á sunnudeginum var sofið út, kíkt á minn gamla vinnustað, Bláu Könnuna, með Kötu, Sigrúnu og Hófí, heim að borða læri og svo kíkt á Amour um kvöldið og slúðrað frá sér allt vit.Sem sagt,batterýin hlaðin fyrir átök áramótanna ;)

Gamlársdagur! Sofið út, ó já... Risum ekki úr rekkju fyrr en um 3 leytið (horfðum reyndar á E! þangað til) og þá hófst undirbúningurinn haha :) Sturta, makeup, greiðsla og læti. Fengum þetta dýrindis nautakjöt í matinn og ekki má gleyma svaðalegum eftirrétti :) Fékk spá fyrir komandi ár, bæði með spilum og í bolla, geðveikt nice... svo var það skaupið og flugeldar (sem ég by the way, skaut upp jahú). Að öllu þessu loknu hafði okkur verið boðið í partý til Sigrúnar og það var sko gítarpartý í lagi. Ekki fræðilegur að stynja upp setningu án þess að kalla hana yfir tónleikahaldarana sem höfðu hana Kötu á mili sín í sófanum. Gripið var á það ráð að halda uppi eldhússpartýsstemningu fram á gangi til að geta kjaftað saman :) En Palli beið í Sjallanum og ekki vildum við láta hann bíða! Eftir smá danstakta og nokkur skot, áttuðum við okkur á því að þarna væri meðalaldurinn svívirðilega lágur og flúðum við börnin hið snarasta! Fórum við til hinna ellismellanna á Kaffi Akureyri, og tókst mér að hitta eiginlega alla sem ég hafði ætlað að hitta. Um 6 leytið fukum við Kata heim í rokinu eftir einstaklega skemmtilegt kvöld:) Nýja árið var komið og byrjaði vel!

Það sem hefur gerst eftir þetta er að ég byrjaði í skólanum, mína síðustu önn, sem ég klára í vor :) Búin að taka eitt damm, um síðustu helgi sem var hrikalega skemmtilegt og stefnan er tekin á annað um næstu helgi :) Í gær fórum við gamla gengið, ég, Kata, Hófí og Bára út að borða á Red Chili, en það er orðinn árlegur viðburður að fara út að borða í janúar. Kíktum svo í eftirrétt á Kaffi París og að lokum í bjór og skot á Glaumbar ;) Óhætt er að segja að kvöldið hafi verið vel heppnað :) Í dag er búið að slappa mikið af, lesa, sofa, horfa á leikinn (heitasta helvíti!) og kíkt á The Mist í bíó, rosalega freaky mynd með hrikalegum endi... úff! En ef ég ætla að gera eitthvað af viti í bylgjum í fyrramálið, þá verð ég að fara að sofa... later!

Myndir fá jólum og áramótum hér til hliðar.
Myndir frá djammi síðustu helgar á síðunni hjá Fríðu.
20. janúar 2008 klukkan 23:53
Arna Björk Valgeirsdóttir
9 athugasemdir
26desember

Gleðileg jól!


jól

Gleðileg jól og takk fyrir mig :) Vonandi eru allir búnir að hafa það rosalega notalegt yfir hátíðina. Ég tók mig til á þorláksmessu og flutti til foreldranna og er búin að liggja í vellystingum síðan :) Erfiður desembermánuður að baki og nú er verið að safna orku í nýtt og magnað ár þar sem mikið verður um skemmtanahöld í klaustrinu ;) Gjafirnar mínar hittu allar í mark og mamma er búin að sjá til þess að maginn gauli ekki (í þessum skrifuðu orðum kom hún færandi hendi með konfektmola ;)) Notalegra verður það ekki :) Ég er flutt í nýju íbúðina og ætla að vera búin að standsetja hana fyrir nýja árið, þegar hið rosalega INNFLUTNINGSPARTÝ verður haldið!!! 
Þessa stundina er ég hins vegar að velta fyrir mér hvort ég ætti að bregða undir mig betri fætinum og skjótast norður yfir áramótin, þar sem meirihluti vinanna verður þar, hvað finnst ykkur??? Endilega tjáið ykkur um málið.
En ég ætla að halda áfram með jólabækurnar, hafið það gott :)
26. desember 2007 klukkan 19:35
Arna Björk Valgeirsdóttir
4 athugasemdir
09desember

Helgin!

Jólin eru að koma, það er sko alveg á hreinu! Var að koma úr laufabrauðsgerð hjá mömmu og það er langt síðan það hefur verið svona mikil stemning í kringum það :) Gaman þegar þau gömlu eru flutt suður og svona, við fórum öll héðan og Jóhanna mætti með sitt lið og skelltum við okkur í einar 80 kökur :) Ég var DJ og blastaði gömlu góðu jólalögin og held ég að önnur eins listaverk hafi vart sést meðal laufabrauðsgerðafólks... :) Svo voru auðvitað nýbakaðar pönnsur á boðstólnum sem og ótal smákökusortir þannig að ég er vel mett :)

Í gær höfðum við heimilisfólkið fondu í fyrsta skipti frá því að ég flutti inn og það var ákveðin upplifun! Þetta var mjög gott og mikil stemning að borða svona mat í rólegheitunum, þó svo að ég hafi angað eins og djúpsteikingarpottur á eftir :) Á boðstólnum var t.d. gúllas, hörpudiskur,krabbi, grænmeti, ídýfur, brie og fleira ljúffengt :) Mæli með fondu...

Dreif mig svo í bíó með Kötu á ekta chick flick, Sidney White. Svona kvöldstund klikkar ekki... Skemmti mér við það heima hjá henni að innrétta mína íbúð í huganum, enda er ég að flyta inn eftir 9 DAGA!!! Can't wait...
... ójá, innflutningspartý!
09. desember 2007 klukkan 17:11
Arna Björk Valgeirsdóttir
2 athugasemdir
22október

Upprisa - kannski

Jæja elskurnar mínar, ég skal blogga smá:)

Á laugardag hélt Arna vinkona upp á afmælið sitt og var það Halloween þemapartý. Fagnaðurinn lukkaðist vel enda var mikið lagt í kvöldið. Þær systur voru búnar að skreyta íbúðina hátt og lágt, útbúa bollu og bakkelsi :) Flestir tóku þemað alvarlega og mætti í búning og var m.a.s. búningakeppni, sem hún Diljá blómálfur vann :) Hlaut hún glæsilegan bikar... Að sjálfsögðu var aðeins sötrað og fljótlega uppúr miðnætti var haldið niðí bæ þar sem við dönsuðum frá okkur allt vit :)

Ræs!!! Klukkan er 9 á sunnudagsmorgun, og mín má gjöra svo vel að vakna í vinnuna á Vegó :( Tókst það þó furðu vel og var ég mætt fyrst allra :) svo var kolklikkað að gera allan daginn, við fáliðuð og Airwaves í fullum gangi...  Tók svo það skref að segja upp að nóvember loknum, enda er ég búin að vinna eins og geðsjúklingur síðan í sumar og er ég bara nokkuð stolt af því :)

Nenni ekki meiru í bili...

MYNDIR ÚR PARTÝI HÉR TIL HLIÐAR :)
22. október 2007 klukkan 21:45
Arna Björk Valgeirsdóttir
6 athugasemdir
11september

Ísmót 2007

Tók þátt í Ísmótinu 2007 sem haldið var í nýju Laugardalshöllinni fyrstu helgina í september. Hér eru nokkrar myndir...

Inga og Anna módel

Inga Kristín módel Örnu A. og Anna Sigga, módelið mitt :)

Anna Sigga

Anna Sigga módelið mitt í úber pósu :)

Arna A. Inga, Anna og ég

Við Örnurnar með módelin okkar

Fleiri myndir má finna hér:
http://public.fotki.com/Arnino/

11. september 2007 klukkan 20:55
Arna Björk Valgeirsdóttir
8 athugasemdir
27ágúst

Allt að verða craazy...

... já það mætti sko halda það! Dagskráin hjá mér þessa dagana er út í hött. Ég byrjaði í skólanum í síðustu viku og ég held að það stefni í skemmtilegan vetur. Þegar ég er ekki í skólanum þá verð ég upp á stofu að vinna og líka á Vegamótum aðra hverja helgi :) Hljómar þetta ekki dásamlega...

Annars er ég núna að undirbúa mig fyrir Ísmótið sem haldið verður um næstu helgi í nýju Laugardalshöllinni, en ég er að fara að keppa í háralitun. Þetta er allt saman mjög spennandi og ég er loksins komin með einhverja hugmynd um hvað ég ætla að gera. Allir eru velkomnir á sýninguna sem stendur yfir alla helgina og það er ókeypis inn. Minn flokkur er á sunnudaginn, þannig að endilega kíkið... :)

Annars er ég að smala í djamm á föstudag... hver er game??? Nú reynir á hver er harðasti djammarinn...
27. ágúst 2007 klukkan 20:45
Arna Björk Valgeirsdóttir
1 athugasemd
12ágúst

Djamm djamm djamm

Versló 2007
Akureyri


Versló 2007


Já gott fólk, versló var sko mööögnuð :) Við lögðum af stað beint eftir vinnu á föstudag og vorum komin í höfuðborg norðursins um 11 leytið. Eftir næringu hjá mömmu var hafist handa og áfengið dregið upp úr töskunum. Kata og Tóti komu til okkar og við sátum við eldhúsborðið heima hjá mömmu fram eftir kvöldi, eða þar til fólk var orðið allhresst (sumir meira en aðrir) :) Við beint niðrá Amour þar sem við dönsuðum frá okkur allt vit og ég hitti bókstaflega ALLA!!! Þvílíkt herjarinnar fjör :) Við enduðum á Tikk Takk þar sem ég ákvað að gefa Örnu og Stellu hina rómuðu Búkollu og komist var að þeirri niðurstöðu að þær deila ekki ástríðu okkar norðmanna á nautakjöti, frönskum og bernaisesósu :) Það mátti reyna...
Dagurinn eftir bar merki herlegheitanna og ákveðið var að skella sér í þynnkusund eftir ljómandi góðan hádegisverð hjá mömmu. Útsýnið var gott í sundi og við ætluðum sko aldeilis að fara aftur daginn eftir :) Ég sýndi stelpunum Kringluna á Akureyri a.k.a. Glerártorg en þar var reynt að innbyrgja eitthvað djúpsteikt (þó svo að ég hafi aðallega horft á matinn og tekið Treo framyfir hann :)) Um kvöldið fengum við læri hjá mömmu og þá fyrst fór eitthvað innfyrir mínar varir... Um kvöldið var okkur boðið í "smá" partý hjá Hauk og Fríðu sem endaði í 20 - 25 manns :) Frekar gaman... Fríða var óð á myndavélinni enda hékk hún um hálsinn allt kvöldið, afraksturinn má sjá á myndasíðu hennar! obb bobb bobb... Fórum að sjálfsögðu niðrí bæ og rúlluðum heim um 6 leytið...
Sunnudagur... annar í þynnku... þó var ég óvenju hress :) Ákváðum að fara aftur í sund en útsýnið var ekki alveg jafn gott, þannig að við enntumst stutt og fórum í Brynju. Ísinn þar stóð sko undir nafni og voru dömurnar mjög sáttar. Ferðin var svo toppuð á Greifanum :) Um kvöldið komumst við að því að allir foreldrar ætluðu að halda sig heimavið þannig að lausnin var brekkufyllerí niðri á Akureyrarvelli. Vel valið :) Horfðum á flugeldana, "átum" candyfloss (sjá myndir hehe) og urðum hífuð. Hitti Steinar frænda og vini hans og fórum á kaffi Ak og Amour. klukkan var orðin 6 og rúmið farið að líta ansi vel út...
Eftir vel heppnaða helgi fór ég og fékk OK hjá laganna vörðum um að ég mætti keyra heim, þó svo að bílinn minn hafi ekki verið alveg jafn til í það! Um 10 var ég komin heim, Sex and the City komið í tækið og við tók langþráð afslöppun!
Þeir sem vilja minnast ferðarinnar ættu að kíkja á myndasíður Stellu og Fríðu, en þær má finna inná crewid.bloggar.is!
12. ágúst 2007 klukkan 21:13
Arna Björk Valgeirsdóttir
5 athugasemdir
23júlí

Ágrip!

ókey ókey ég skal blogga :)

Það sem er markverðast síðan ég ritaði mitt síðasta blogg er eftirfarandi:

Afmælisveislan mín...
hélt hana í Karlagötunni heima hjá henni Kötu sem var svo elskuleg að lána mér slotið fyrir herlegheitin :) Ég bauð kellunum í fordrykk (sem mér tókst nú samt að sprauta yfir allt eldhúsið áður en hann endaði í glösunum) og ég fékk allnokkra glaðninga :) Síðan fórum við á Caruso þar sem við snæddum guðdómlegan kvöldverð... mínar yndislegu vinkonur pöntuðu handa mér Screaming Orgasm (sem bragðaðist reyndar ekkert voðalega vel :() og hápunktur kvöldsins var þegar mér var færð fljótandi súkkulaðisæla með ís... nammnammnamm. Afvelta skriðum við heim og drukkum, lékum okkur í alls kyns leikjum, dönsuðum og máluðum bæinn rauðann... það gerist ekki mikið betra :) Kíkið á myndir...

Stofnun Crew.bloggar.is...
Á laugardag fórum við Arna í heimsókn til Fríðu þar sem planið var að fara í Wii, drekka töluvert og fara svo á rall. Útkoman var nú fjári skemmtileg þar sem við í ölæði, stofnuðum djammcrew, sem verður aðal stuðgengi bæjarins. Nánar...

Hugsanleg aukavinna...
Viti menn, ég er hugsanlega komin með aukavinnu í vetur! Ég er allavega að fara að vinna alla helgina á Vegamótum og ef allt gengur vel þá er ég í góðum málum...
23. júlí 2007 klukkan 22:56
Arna Björk Valgeirsdóttir
5 athugasemdir
12júlí

Og tíminn líður...

Afmælistilkynning!!!
Já já, hún Arna litla er að verða 23.ára á mánudaginn Hissa
Í tilefni af því ætla ég að halda upp á það á laugardagskvöld og eru allir mínir vinir velkomnir.
Shjindiggið verður í Karlakötu 20 og verður tímasetning auglýst síðar.
Þeir sem hafa einhverjar spurningar um atburðinn hafi samband við Katrínu Hólm, skemmtanastjóra!
Kveðja, nefndin!
12. júlí 2007 klukkan 18:16
Arna Björk Valgeirsdóttir
11 athugasemdir
03júlí

Búlgaría!!!

Sökum mikils hópþrýstings hef ég ákveðið að hnipra niður það helsta um Búlgaríuferðina sem við stöllurnar fórum í...!

Fjörið byrjaði á því að 17.júní hittumst við heima hjá Kötu og ætluðum nú aldeilis að vaka fram að brottför sem var 8:30 næsta morgun. Byrgðum okkur upp af snakki og gosi og héldum þetta út á galsanum einum saman. Komum allt of snemma í flugstöðina og vorum orðnar vel myglaðar þegar loksins kom að því að fara í loftið. Hittum Fríðu og Hauk í fríhöfninni á leið í útlöndin og það verður sko tan-keppni þegar þau koma heim :) Eftir rúmlega sólahringsvöku vorum við á leið til Búlgaríu... Jibbí... og ég svaf meirihluta leiðarinnar :) Lentum í steikjandi hita og fórum beint upp á hótel Perlu, skiptum um föt og fengum okkur kokteila. Ákváðum þó að fara snemma í rúmið þar sem fæturnir báru okkur ekki mikið lengur :)


Dagarnir eftir það einkenndust af sólbaði, ýmist á ströndinni eða fyrir utan hótelið hjá okkar elskulegu, ísköldu sundlaug og æðislega bar :) Komumst reyndar að því að einna bestu kokteilarnir í Búlgaríu fengust á strandbarnum, og prófuðum við allnokkra :) Okkur tókst öllum að brenna og ákveðið var að fjárfesta í sunBLOCK nr.50 og fannst afgreiðsludömunni það ansi furðulegt :)


Matarmenningin var ansi spes. Fyrsta kvöldið borðuðum við á stað er kenndur er við Mikka Mús og var það einn sá almesti óbjóður sem ég hef látið inn fyrir mínar varir, og innlendi bjórinn var sko alls ekki góður :( En söngkonan á staðnum hélt uppi stemningunni en þrátt fyrir það hétum við því að koma aldrei aftur inn fyrir dyrnar á þessm stað.  Hápunktar ferðarinnar voru nokkrir:

Fórum á kínverskan stað sem var rétt hjá okkur og það heppnaðist mjög vel og allir fengu eitthvað ætt, bjórinn bragðaðist m.a.s. betur, en það er kannski af því að maturinn var betri :)

The old lighthouse var mjög huggulegur staður við ströndina með geggjuðu útsýni yfir Svartahafið, einkar indælum þjóni og sjúklega góðri Tiramisu.

Indian tandoori var geðveikur staður sem Guðný systir mælti með og hann klikkaði sko ekki...

Svo var það náttúrulega club samlokan á Prima sem bjargaði lífi Kötu :)

Óhætt er að segja að alla ferðina höfum við toppað matinn sem við fengum fyrsta kvöldið og voru eiginlega allir staðirnirnir eftir það mjög fínir, þó svo að ég hafi saknað íslensku kokteilsósunnar óendanlega mikið.

 

Djammið var sko tekið með trompi, eiginlega of miklu trompi fyrsta kvöldið því við vorum handónýtar daginn eftir (maður kann sér ekki alltaf hóf:)) Helstu staðirnir voru Bonkers og Roxy en þar djömmuðum við með heilu blakliði þjóðverja. Á hverju kvöldi smökkuðum við nýja kokkteila og fórum á nýja pöbba. Mér tókst að rústa einu pari af skóm og stelpurnar fórum með fleiri fleiri pakka af plástrum í ferðinni sökum fótablaðra og ýmsra sára :)

Búlgaría var kvödd með söknuði og verður ferðin örugglega endurtekin að ári liðnu :)

 


03. júlí 2007 klukkan 18:37
Arna Björk Valgeirsdóttir
6 athugasemdir

Aðalvalmynd

Myndirnar mínar

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...