Allt að verða craazy...
... já það mætti sko halda það! Dagskráin hjá mér þessa dagana er út í hött. Ég byrjaði í skólanum í síðustu viku og ég held að það stefni í skemmtilegan vetur. Þegar ég er ekki í skólanum þá verð ég upp á stofu að vinna og líka á Vegamótum aðra hverja helgi :) Hljómar þetta ekki dásamlega...Annars er ég núna að undirbúa mig fyrir Ísmótið sem haldið verður um næstu helgi í nýju Laugardalshöllinni, en ég er að fara að keppa í háralitun. Þetta er allt saman mjög spennandi og ég er loksins komin með einhverja hugmynd um hvað ég ætla að gera. Allir eru velkomnir á sýninguna sem stendur yfir alla helgina og það er ókeypis inn. Minn flokkur er á sunnudaginn, þannig að endilega kíkið... :)
Annars er ég að smala í djamm á föstudag... hver er game??? Nú reynir á hver er harðasti djammarinn...
27. ágúst 2007 klukkan 20:45
Arna Björk Valgeirsdóttir
Arna Björk Valgeirsdóttir
Bið að heilsa.....beddinn bíður eftir þér ;)